Bloggar | 14.12.2006 | 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Já, nú hef ég góðar fréttir að færa. Á mánudaginn var, ákváðum við Friggi minn að flytja norður. Á miðvikudaginn pantaði ég fasteignasala til að meta íbúðina og taka myndir og þess háttar og hann ætlaði að mæta á fimmtudaginn. Fór svo niður í vinnu, hitti þar Eddu samstarfskonu mína og vildi það svo til að sonur hennar var að leita sér að íbúð. Á miðvikudagskvöldið komu þau og skoðuðu og vildu taka íbúðina ef hann stæðist greiðslumatið. Og viti menn við erum búin að selja íbúðina á 2 dögum, skrifum undir í næstu viku og erum á leiðinni til Akureyrar í byrjun febrúar. Svo fasteignasalinn þurfti bara að meta íbúðina og ekkert annað. Svo núna erum við á fullu að leita okkur að leiguhúsnæði á Akureyri og vinnu auðvitað. Það er brjáluð tilhlökkun hjá okkur fjölskyldunni og hlakkar öllum auðvitað til að fá okkur alfarið norður. Við erum alltof mikið ein hérna fyrir sunnan og ættum að vera löngu farin norður. Þetta eru frábærar fréttir hér hjá okkur. En læt þetta gott heita í bili. kv. Beth
Bloggar | 1.12.2006 | 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er núna alltaf að læra, reyna að nýta tímann þegar Jason er sofandi. Er orðin svolítið eftir á í Íslenskunni og þarf að ná því upp áður en ég undirbý mig undir próf sem verður þann 12 des. Tími ekki að hætta í Íslenskunni þar sem ég kláraði ritgerð úr Snorra Eddu og fékk 9,2 í einkunn. Ein grobbin. Svo er ég að pæla að fara fyrr norður ef Valdi bróðir Frigga fer ekki fyrr en í kringum 15 des. Vil ekki skilja Frigga minn of lengi eftir einan heima. ha hah.
Jólaskapið er ekki farið að láta kræla á sér hjá mér. Það kemur þegar ég fer að pakka jólagjöfum og þrífa og hengja upp jólaskrautið sem er ekki langt í að ég geri. Ætla reyna vera búin að hengja það upp fyrir fyrsta í aðventu.
Jæja við heyrumst seinna.
Bloggar | 23.11.2006 | 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er einhver að fylgjast með The Biggest Loser. Alla vegana þá er ég að fylgjast með þeim og finnst þeir frábærir. Það er svo gaman að sjá muninn á fólkinu, ég hef óhemju gaman af svona þáttum eins og þessum og svo var ástralskur þáttur líka sem er að vísu hættur núna en það er kominn íslenskur þáttur í staðinn sem heitir Frægir í form. Hann byggist nákvæmlega eins upp og ástralski þátturinn. Brjálað átak í 6 vikur og svo líka sagt um aldur líkamans miðað við hvaða formi þú ert í, brjáluð stemmning. En ég er líka í átaki en einu sinni skráði mig í síðustu viku í 6 vikna átak hjá Árbæjarþreki og heitir það jólakötturinn. Er búin núna með eina viku og er að léttast á fullu, kemur bara í ljós hvernig gengur í lok átaksins. Það er víst einhver vinningur fyrir þann sem vinnur átakið, hlakka rosalega til að fá þann vinning, hahaha.
Í dag er frábært veður úti nema að það er brjálað frost eflaust 6-7 stiga frost ef ekki meira. Og Jason minn sefur úti í þessum kulda og sefur líka vel. Jason er kominn með dagmömmu, hún heitir Ragnheiður og er í Vesturbergi, hann byrjar hjá henni í byrjun mars 2007. Ég er hætt í Félagsfræði sem ég er eflaust búin að nefna áður en er ennþá í Íslensku og er ekki nógu dugleg í henni verð ég nú bara að segja.
Verð að fara taka mig á í að klára hana. Svo þarf maður nú að fara byrja á jólahreingerningunum. Ég er ekki að fatta að jólin séu að koma, það er engin jólastemmning komin í mig. Er ekki að skilja það því ég er nú svo mikið jólabarn. Það er greinilega nóg að gera hjá mér eða það hlítur að vera. hahaha.
Sí jú later
Bloggar | 15.11.2006 | 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Góðan daginn, núna er maður farinn að vakna um sjö leytið á morgnana. Jason er farinn að vakna bara einu sinni á nóttunni LOKSINS, svo hann vaknar orðið fyrr á morgnana. Það er bara hressandi. En annars er bara allt fínt að frétta. Ég var á kynningu hjá NSE um helgina og var það bara gaman. Ég og Friggi minn erum að fara hella okkur út í NSE. Mér finnst þetta rosalega spennandi verkefni, það á eftir að styrkja mann mikið í samskiptum og sjálfstraustið á bara eftir að vaxa. Svo er svo margt komið nýtt hjá þeim, t.d. Photomax sem er snilldar tæki og ég mæli mjög mikið með því. Þar sem að þetta er framtíðin. Ég mæli með að þið skoðið vörurnar hjá okkur, þið getið kíkt á linkinn Heilsa og útlit og þess vegna Tækifærið.
Jákvæðnin er líka farin að skína í kringum mig núna. En því miður þurfti ég að hætta í félagsfræðinni, hef ekkert unnið í henni svo ég ætla bara að klára Íslenskuna og vinna í nýja fyrirtækinu okkar. Ég er svo spennt yfir þessu og við ætlum að ná langt í þessu. Ég ætla ekki að gefast upp og hætta eins og ég er vön að gera, en ég þarf ekkert að vera segja það hérna ég segi sjálfri mér það bara. Rannveig vinkona ranghvolfir eflaust augunum núna, ég er víst alltaf að stefna á eitthvað en stend mig aldrei í stykkinu, en það er ekki við þetta. Þar sem þetta er frábært fyrirtæki og það er með FRÁBÆRAR vörur og lausnir sem ég mæli hyklaust með þá mun þetta ganga. Ég vil verða heimavinnandi í framtíðinni og vinna við þetta, það er svo fjölskylduvænt, þar sem við erum í fjölgun mannkynsins næstu árin.
Bið að heilsa núna í bili. kv. Beth
Bloggar | 31.10.2006 | 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
HALLÓ hvað er í gangi með mig. Já, það er sko langt síðan ég bloggaði síðast algjör leti í gangi. Ég er búin að fara norður. Ég og Jason fórum tvö norður og vorum í 10 daga eða svo. Þar var mjög rólegt og notalegt, bara gaman að koma heim annað slagið og hitta fjölskylduna. Já og svo fórum við á Árshátíð síðustu helgi hjá Svefn og Heilsu. Það var farið á Geysi og þar gistum við í bústöðunum alla helgina. Þar var auðvitað drukkið mikið og haft gaman. Frábær matur og skemmtileg helgi. Á sunnudeginum var Jason orðinn lasinn, greyið fékk hita og var hann með hita í 2 daga, fyrsta skiptið sem hann varð veikur. Og auðvitað þurfti mamma að smitast að honum. Lá rúmföst allann þriðjudaginn og Friggi minn þurfti að koma heim úr vinnunni og sjá um Jason, þar sem ég gat ekki hreyft mig af beinverkjum og ógleði. Er enn í dag að ná þessari flensu úr mér, en er samt ágæt. Í framhaldi af því þá er íbúðin búin að vera á hvolfi þar sem ég hef ekki haft tíma né heilsu að þrífa, en ætla að reyna byrja á því á eftir.
Því miður gengur mér ekki alltof vel í fjarnáminu. Er að pæla hætta í félagsfræðinni þar sem ég er varla byrjuð á henni. En Íslenskan gengur allt í lagi svo kannski ég klári þá bara annað fagið. Það er alveg nóg að vera í einu fagi. Ég get alveg verið í tveimur ég bara hef ekki agann í það og langar ekki að eyða öllum frítíma mínum þegar hann sefur í að læra. En sjáum til hvernig gengur þegar líður aðeins lengur á önnina.
Pælingar hjá mér þessa dagana, ég er alltaf að pæla eitthvað. Það er að reyna auka sjálfstraustið hjá mér, því það er ekki upp á marga fiska skal ég segja ykkur. Ég verð einfaldlega að fara reyna láta ljós mitt skína aðeins betur. Ég hef ekki mikið lést þessa dagana en ekki heldur bætt neinu á mig. Er búin að missa tæp 6 kg. og er alveg stop núna. Ég er með einhverjar bólgur líka í vinstri hælnum og er mis góð í honum. Hællinn er búinn að vera hrjá mig í nokkrar vikur og er ekkert að skána. Svona lítið kom mér til að hætta labba eins og ég gerði. En ég ætla að reyna ná af mér 7 kg fyrir jól og svo fram að sumari svona 5-7 kg og þá ætti ég að verða ánægð með mig því þá er ég komin ofan í kjörþyngd mína. EN hugsa bara fram að jólum fyrst. Jæja ég held þetta ætti að vera gott í bili og ætti að duga út þennan mánuð hehehe neinei smá grín verð að vera duglegri að blogga, það er svo gott að koma hugsunum sínum á blað. Heyrumst.
Bloggar | 19.10.2006 | 10:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jæja þá er komin 20 sept. og mér hefur gengið vel þennan mánuð. Ég hreyfði mig ekki alveg alla daga eins og ég ætlaði mér, og hef smá svindlað í mataræðinu núna síðustu viku. Í byrjun var ég að vonast eftir því, að um 3 kg færu, en viti menn ég missti 4,7 kg fyrsta mánuðinn. Ekkert smá gaman. Svo það eru aðeins eftir 6 kg þá verð ég komin ofan í það sem ég var þegar ég varð ólétt. En að vísu þarf ég að missa meira en ég vinn bara að því eftir jól. Ég var núna að koma frá doktorinum vegna ég fór að finna eitthvað til í hælnum og eru víst einhverjar bólgur í honum, en doktorinn gat ekki gert neitt fyrir mig þar sem ég er með Jason á brjósti þá get ég ekki fengið bólgueyðandi. Svo ég verð bara að bíta á jaxlinn, þar til þetta líður hjá. Fyrst þetta fór nú svona ætla ég að minnka labbitúrana og fara frekar að synda meira. Ég ætla sko ekki að hætta hérna, því ég er ennþá langt yfir kjörþyngd. Svo ég ætla að taka einn mánuð núna en ætla að vigta mig oftar, á 10 daga fresti í stað mánuð. Gott að blogga þessu hérna inn því þá verð ég að standa mig.
Ég er byrjuð á fullu að læra, er að lesa hina skemmtilegu, víðfrægu bók um Eddu eftir Snorra Sturluson. Já þetta er ekkert smá erfið lesning, ég þarf að lesa hana aftur og aftur og aftur yfir til að muna eitthvað úr henni. Það verður gaman að sjá hvernig mig eigi eftir að ganga í náminu. Heyrumst í bili
Bloggar | 20.9.2006 | 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Var að koma heim, hún Berglind vinkona hringdi í mig og bað mig að koma á dansmynd. Já og auðvitað dreif ég mig Im a sucker fyrir dansi. Myndin heitir Step up, og er ágætis mynd til að horfa á. Mér fannst hún fín gaman að horfa á fólk dansa flott, líka ágætis söguþráður þetta er bara svona góð afþreying. Mæli alveg með henni á spólu, þarf ekkert að vera kaupa sig inn á bíó fyrir þessa mynd. Þannig er nú það.
En það er alltaf gaman að fara svona óvænt út, þegar þú hefur hvort eð er ekkert annað að gera, mæli hiklaust með því. Well sí jú.
Bloggar | 10.9.2006 | 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áfram heldur lífið og allt gengur eins og í sögu hjá mér. Mér gengur vel að hreyfa mig, labba á hverjum degi og í gær fór ég og Rannveig í sund og syntum 20 ferðir, vá hvað það er erfitt ég ætlaði ekki að trúa því, við ætlum að fara 1-2 í viku í sund svona með labbinu. Svo hef ég ekkert farið á vigt ennþá síðan 20 ágúst, það eru 2 vikur í dag til 20 sept, er farin að vera spennt að sjá vonandi nýja tölu á vigtinni. Verð bara halda áfram svona eins og ég hef verið að gera þá ætti ég að verða glöð hahaha. Já svo var ég að skrá mig í fjarnám og er búin að borga svo það er ekki hægt að hætta við það, mig bæði kvíður fyrir og hlakka til að sjá hvernig mér gengur í þeirri deild. Er einmitt núna að safna gömlum einkunum saman til að láta meta mig inn í skólann. Og viti þið hvað ég var að finna fyrir fyrstu tönnunum hjá Jasoni í morgun, hann er að fá báðar framtennurnar í neðri góm í einu, þvílíkur töffari. Ég var ekkert smá glöð, það er allt svo spennandi alltaf eitthvað nýtt að gerast hjá þessum krílum. Ég var svo spennt að ég hringdi strax í Frigga, ég alveg geislaði af stolti, ekkert smá fyndið hvað maður er skrítinn. En jæja best að fara ganga frá hérna á heimilinu hjá okkur. Sí jú.
Bloggar | 6.9.2006 | 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Já, börn eru yndislegar manneskjur. Ég hef alltaf haft gaman af börnum, þó að hávaðinn frá þeim geti pirrað mann upp úr skónum stundum. Allavegana fannst mér alltaf gaman af börnum systkyna minna en varð stundum ofur pirruð á öskrum og látum í þeim, systrum mínum var eflaust bara skemmt af því hvernig ég leyfði þeim að fara í taugarnar á mér stundum. Svo eignaðist ég sjálf lítinn öskurapa sem lætur sko heyra í sér ef honum vantar eitthvað og það er ekki lítill hávaði. Læt ég það fara í taugarnar á mér nei nefnilega ekki, ég held að það sé öðruvísi þegar þetta snýst um þitt eigið barn. Eða málið er kannski að maður þroskast gífurlega við að eignast barn og áttar sig betur á þeim. Bara strax og þú færð litla krílið í hendurnar þá kemur þessi ábyrgðar og verndartilfinning um leið og uppfrá því verður hún sterkari og sterkari og sterkari. Í dag hugsa ég til baka og get liggur við ekki séð mig fyrir mér eina, sem sagt ekki með Jason. Skrítið hvað lífið breytist. En Karen mín, spurningunni svara ég neitandi sem þú spurðir mig um í fyrri færslu. ÉG ER EKKI MEÐ ANNAÐ Á LEIÐINNI, allavegana ekki strax. Við skulum leyfa Jasoni að njóta sín aðeins næstu 2 árin áður en annað kemur. Út í annað, fæðingin. Já, fæðingin, þetta er ekkert smá ferli, og það er yndislegt þegar það gengur eins og í sögu. Hjá mér eða okkur Frigga þá tók fæðingin frá fyrsta verk (kom kl 3 um nótt) tók hún um 20 tíma. Það er bara passlegt fyrir frumbyrjur. Útvíkkunin fór afar hægt af stað og það var ekki fyrr en um kl 4 um daginn sem hún fór að ganga að viti. Svo kl 23:18 fæddist litli prinsinn hann Jason minn. Þetta var auðvitað vont og tók langan tíma, en ég hef aldrei á ævinni gengið í gegnum yndislegra. Þetta er það æðislegasta sem þú gengur í gegnum, þegar þú færð krílið í hendurnar þá sérðu hvað ferlið var þess virði og hvað þú ert búin að afreka og ert þess vegna tilbúin eftir 1mánuð að gera þetta aftur. Það eru kannski ekki allar sammála mér sem ég býst við, þá held ég að það hafi ekki gengið eins og í sögu hjá þeim. Það gekk það vel hjá mér að ég fékk aðeins smá vatnsbólur sem er nokkurskonar deyfing, en hún virkar ekki lengi og ég mæli með þeirri deyfingu. Já og í restina notaði ég gasið það er líka ÆÐISLEGT. Þessi klausa átti að fjalla um börn og fór út í fæðingu en það er bara gaman af því. Já ég læt svo heyra í mér fljótlega aftur.
Bloggar | 3.9.2006 | 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Ýmislegt
Tenglar
Bloggvinir
| Jan. 2012 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
| 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
| 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
| 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
| 29 | 30 | 31 | ||||
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 3334
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

gully






